
Í dag 27 október mun Forseti Íslands herra Guðni Th. Jóhannesson koma í heimsókn til okkar klukkan 16:00. Við verðum með opið hús frá 15:00 – 17:00. Allir eru að sjálfsögðu velkomnir að Síðumúla 32, 3 hæð!
Á þessu ári eru fimm ár síðan Specialisterne á Íslandi hófu starfsemi sína. Fyrstu einstaklingarnir komu til okkar í ágúst 2011. Við erum afar ánægð og stolt af öllum þeim einstaklingum sem eru nærri 100 sem hafa komið til okkar og náð miklum árangri í sínu lífi.
Á þessum tímamótum höfum við tekið til á heimasíðu okkar og bætt við myndum úr starfsemi okkar ásamt þvi að vísa í eldri vefsvæði sem geymir mikla sögu.
